Um

 

sigrunasasig@gmail.com           

facebook/instagram : Sigrún Ása leikur og list

Sigrún Ása Sigmarsdóttir (1957) hefur sótt myndlistarnámskeið hjá ýmsum kennurum. Rauði þráðurinn í verkum hennar er náttúruleg form. Þar er sterk vísun í lífrænan plöntuheim, hið smágerða og fínlega er kallað fram með notkun sterkra lita og áferðar. “Leikur og list er leið til að vaxa og segja nýar sögur um tilveru mína. Sterk tenging við náttúruna vekur stöðuga forvitni, undrun, vellíðan og gefur innblástur. Sköpunin birtist með ljóðum, vatnslitum, útsaumi, teikningu, málverki og margvíslegum aðferðum og verkfærum, ég æfi mig, reyni nýja hluti, leik mér og læri. Mig langar að fólk taki eftir upplyftingu og litagleði í huga sínum, að verkin mín geri öðrum kleift að finna það sem ég finn, gleði í vakandi vitund”.

2020 Bókasafn Kópavogs, einkasýning

2021 Veggurinn/Skúmaskot, einkasýning

2022 Hæðargarður, samsýning

2023 Veggurinn/Skúmaskot, einkasýning

2024 Sundlaug Akureyrar, væntanleg í apríl